Terms of service

 

Almennt
VSK númer 14557

Hafnarfjörður
Instagram: rockiticeland

Rockit áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. Vegna rangra verð- eða lagerupplýsinga og eining að hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. 

Verð, skattar og gjöld
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Öll verð í netversluninni (og sendingarkostnaður) eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Sendingarkostnaður og valmöguleikar
Við notum Dropp 

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar þegar greiðsla hefur verið staðfest eða næsta virka dag. 

Þær vörur sem fara í póst er dreift af Dropp og gilda afhendingar- og ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp um afhendingu vörunnar.  Rockit ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá vöruhúsi okkar til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Kemur það upp að vara sé ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Að skipta eða skila vöru
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með millifærslu fyrir vörunni en flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Skil á vöru, þú sendir okkur vöruna með pósti á eigin kostnað eða við mælum okkur mót á höfuðborgarsvæðinu

Vinsamlegast hafið samband við okkur á Instagram @rockiticeland með spurningar.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða við mælum okkur mót á höfuðborgarsvæðinu. Endurgreiðum ef þess er krafist.

Ábyrgð
Ábyrgð miðast við 6 mánuði frá afhendingu vöru.  Ekki er tekin ábyrgð á vörum sem verða fyrir höggi.  
 
Tæki sem eru sett utan á kerru og verða fyrir höggi og rispast þá þegar kerra fer í gegnum hurðaop til dæmis detta einnig úr ábyrgð.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.